Díana Ósk Kristrúnardóttir
Yfirstandandi kjarasamningslota hófst í mars 2024 og hafa um 260 kjarasamningar nú verið undirritaðir fyrir allflest launafólk bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. Óloknir samningar eru fáir og ná til um 1% launafólks. Á tímabilinu komu þrjár samningsbundnar launahækkanir til framkvæmda á almenna markaðnum en tvær á hinum opinbera.
Frá febrúar 2024 til janúar 2026 hækkaði grunntímakaup sem hér segir:
- Á almennum markaði um 17,0%
- Hjá ríki um 14,8%
- Hjá Reykjavíkurborg um 13,8%
- Hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur um 15,3%.
Um helmingur samningstímans er nú liðinn og hefur verðbólga á tímabilinu reynst þrálátari en spáð var í aðdraganda samninganna. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar á tímabilinu jókst kaupmáttur grunntímakaups frá febrúar 2024 til janúar 2026 sem hér segir:
- Á almennum markaði um 7,8%
- Hjá ríki um 5,7%
- Hjá Reykjavíkurborg um 4,8%
- Hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur um 6,1%
Í kjarasamningum var almennt samið til fjögurra ára og farin blönduð leið krónutölu- og prósentuhækkana. Samningsbundnar launahækkanir eru því hlutfallslega mestar á lægri laun, en samningar Kennarasambands Íslands við ríki og sveitarfélög voru frábrugðnir öðrum samningum vegna áherslu á virðismat.
Um helmingur samningstímans er nú liðinn og hefur verðbólga á tímabilinu reynst þrálátari en spár gerðu ráð fyrir í aðdraganda samninganna. Útlit er fyrir að samanlagður hagvöxtur fyrstu þriggja ára samningsins verði aðeins 1,6% samanborið við spá um 7,7% í aðdraganda samninganna. Óhagstæða hagvaxtarþróun má rekja til allra helstu undirliða landsframleiðslunnar en neikvætt framlag utanríkisviðskipta vegur þó þyngst, þar sem dró úr útflutningi sjávarafurða, stóriðju og þjónustu. Hagstæð verðþróun á útflutningi dregur hins vegar úr neikvæðum áhrifum utanríkisviðskipta á atvinnulífið, þótt áhrifin séu vissulega ólík eftir atvinnugreinum.
Dregið hefur úr spennu á vinnumarkaði. Fjölgun starfandi fólks er nær engin, atvinnuleysi hefur aukist og aðflutningur erlendra ríkisborgara hefur dregist saman. Horfur um verðbólgu ráðast að verulegu leyti af þróun stríðsátaka og áhrifum þeirra á alþjóðlegt orkuverð.
Um þetta og fleira efni er fjallað í vorskýrslu KTN, sem finna má ásamt fylgigögnum á vef kjaratölfræðinefndar ktn.is. Þar má einnig horfa á upptöku af kynningu skýrslunnar.