Umsókn um fræðslustyrk
Verklagsreglur Fræðslusjóðs FOSS
Fræðslusjóðs starfar samkvæmt stefnu og verksviði FOSS.
Stjórn sjóðsins er skipuð af þremur einstaklingum, samkvæmt lögum FOSS 11. grein liður 7. „Kosnir 2 fulltrúar í Fræðslusjóð FOSS til tveggja ára". Ásamt því er einn fulltrúi kosinn af stjórn sem gegnir jafnframt formennsku í sjóðnum. Starfsmaður FOSS er einnig starfsmaður Fræðslusjóðs.
Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld launagreiðanda í vísindasjóð eða fræðslusjóð.
· Í Vísindasjóð (eingöngu fyrir háskólamenntaða félagsmenn) 1,5 % af dagvinnulaunum.
· Í Fræðslusjóð 0,40% af heildarlaunum.
Markmið fræðslusjóðs FOSS er:
· Að félagsfólk beri ekki verulegan kostnað af námi, sem beinlínis er við það miðað, að þeir geti tileinkað sér framfarir og tæknibreytingar á sínu sérsviði.
· Að félagsfólk eigi án verulegs kostnaðar kost á námskeiðum, sem geri þeim mögulegt að taka að sé vandasamari störf og gera þá hæfari einstaklinga.
Skila þarf inn fullgildum reikningi og staðfestingu á greiðslu úr heimabanka fyrir námi/námskeiði með umsókn um styrk.
Reglur þessar gilda fyrir Fræðslu- og Vísindasjóð.
Á sviði fræðslu- og upplýsingamála leggur FOSS áherslu á að skipuleggja fræðslu stjórnar- og trúnaðarmanna.
Úthlutunarreglur
1. Sjóðsaðild
Einungis félagsfólk FOSS geta fengið styrk úr sjóðnum. Réttur til úthlutunar úr sjóðnum er háður því að greitt hefur verið iðgjald til sjóðsins í að minnsta kosti 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum.
1.1. Fæðingarorlof
Félagsfólk í fæðingarorlofi sem velur að greiða stéttarfélagsgjald meðan á orlofi stendur, viðheldur áunnum réttindum í sjóðnum yfir það tímabil sem þeir þiggja fæðingarorlofsgreiðslur frá Fæðingarorlofssjóði.
1.2. Atvinnuleysi
Félagsfólk með full réttindi við upphaf atvinnuleysis viðhalda áunnum réttindum sínum. Skilyrði er að greitt sé stéttarfélagsgjald af atvinnuleysisbótum frá upphafi atvinnuleysis.
1.3. Lífeyrir og örorka
Félagsfólk sem lætur af störfum vegna aldurs eða örorku heldur aðild að þeim hluta sjóðsins sem snýr að sjálfstyrkingu og lífsleikni námskeiðum innanlands í 24 mánuði eftir að greiðslu iðgjalda lýkur. Styrkir vegna starfstengdra námskeiða og/eða náms eru einungis í boði fyrir félagsfólk í virku ráðningasambandi.
2. Upphæð styrkja
Við ákvörðun styrkupphæðar er miðað við greidd iðgjöld í sjóðinn síðustu 12 mánuði. Til þess að njóta fullra réttinda í sjóðinn þurfa iðgjöld í sjóðinn að vera a.m.k. 25.000 kr. Hlutastarfandi er veittur styrkur í hlutfalli við innborgun iðgjalda í sjóðinn sl. 12 mánuði.
2.1. Fræðslusjóður
· Hámarksstyrkur er 120.000 kr. miðað við fullan rétt í sjóðnum á hverjum 12 mánuðum ef félagsaðild er skemmri en 5 ár.
· Hámarksstyrkur er 150.000 kr. miðað við fullan rétt í sjóðnum á hverjum 12 mánuðum ef félagsaðild er yfir 5 ár, eða 300.000 kr. á hverju 24 mánaða tímabili.
· Félagsfólk sem ekki hefur nýtt sér rétt síðustu 5 ára á rétt á styrk allt að 400.000 krónur. Fyrir eitt samfellt nám/námskeið samkvæmt reglum sjóðsins.
2.2. Vísindasjóður
· Úr Vísindasjóði er greitt að hámarki 240.000 kr. á hverjum 12 mánuðum eða 480.000 kr. á hverju 24 mánaða tímabili.
Umsækjandi sem hlotið hefur styrk úr sjóðnum á s.l. 2 árum getur að hámarki hlotið styrk sem nemur ónotuðu hlutfalli af hámarksupphæð.
3. Styrkhæf verkefni
Kostnaður umsækjanda við nám, námskeið, ráðstefnur eða sambærilega þekkingaröflun sem tengja má starfi hans og flokka má undir starfs- eða endurmenntun er styrkhæf.
Umsækjandi þarf að vera í starfi bæði þegar hann sækir um styrk og notar hann, nema styrkurinn varði endurhæfingu þar sem staða umsækjanda hefur verið lögð niður, umsækjandi veikist eða hafi orðið fyrir slysi eða ef umsækjandi lætur af störfum vegna aldurs eða örorku skv. gr. 1.3.
3.1. Hvað er styrkt?
a) Starfstengd námskeið:
o Styrkur getur numið allt að 120.000 kr. á 12 mánaða tímabili.
o Námskeið þarf að falla að viðmiðum um námskeið og vera haldið af viðurkenndum fræðsluaðila.
o Íslenskukennsla fellur undir starfstengt nám. Félagsfólk sem hafa annað móðurmál en íslensku geta sótt um endurgreiðslu vegna íslenskunáms eftir mánaðar félagsaðild. Heildarstyrkur miðast við hámarksupphæð skv. almennum reglum sjóðsins.
Ef starfstenging er óljós þarf að rökstyðja tengingu við starf.
b) Sjálfstyrking og lífsleikni námskeið
o Styrkur getur numið allt að 50.000 kr. á 12 mánaða tímabili, en þó er aldrei greitt meira en sem nemur 80% af námskostnaði.
o Námskeið þarf að falla að viðmiðum um námskeið og vera haldið af viðurkenndum fræðsluaðila.
o Einungis sjálfstyrkingar og lífsleikninámskeið sem haldin eru innanlands eru styrkhæf.
c) Framhaldsskólanám
o Styrkur getur numið allt að 120.000 kr. á 12 mánaða tímabili.
o Nám til eininga.
d) Háskólanám
o Styrkur getur numið allt að 100.000 kr. á 12 mánaða tímabili
o Nám til eininga.
o Styrkir vegna skólagjalda eru ekki greiddir út fyrr en skóla önn er hafin og staðfesting frá skóla um skólavist hefur borist.
e) Ráðstefnur innanlands
o Styrkur er veittur vegna ráðstefnugjalds
Hægt er að sækja um styrk vegna verkefnis sem ekki tengist starfi umsækjanda fjórum sinnum á ári og fer sú úthlutun fram í febrúar, maí, ágúst og nóvember.
3.2. Hvað er ekki styrkt?
Listi þessi er ekki tæmandi upptalning.
a) Uppihald og fæðiskostnaður.
b) Ferðir innan borga og sveitarfélaga.
c) Bensínkostnaður.
d) Launatap.
e) Námsgögn.
f) Námskeiðskostnaður sem þegar hefur verið styrktur úr öðrum sjóði er ekki styrktur.
g) Námskeiðskostnaður maka, barna eða aðrar nákominna er ekki styrktur.
h) Almenn ökuréttindi.
4. Umsóknir og gögn
Sótt er um styrki rafrænt á heimasíðu FOSS.
Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna, með umsókn skal senda greinargóða lýsingu á því námi/námskeiði sem sótt er um styrk fyrir ásamt upplýsingum um hvernig verkefni nýtist í starfi.
Án gagna og umbeðinna upplýsinga vegna umsóknar geta sjóðfélagar átt það á hættu að afgreiðslu umsókna þeirra sé frestað eða þeim synjað vegna ófullnægjandi frágangs umsókna.
4.1. Greiðsla styrkja
Sjóðurinn áskilur sér rétt til sveigjanleika í greiðslu styrkja. Leitast verður við að greiða út styrki úr sjóðnum eins fljótt og aðstæður leyfa hverju sinni. Starfstengdir styrkir eru alla jafna greiddir út vikulega, að undanskildum júlí og ágúst mánuði en styrkir eru ekki greiddir út þá.
Styrkir sem þurfa að fara fyrir nefnd sjóðsins t.d. vafamál og/eða sjálfstyrkingar- og lífstílsnámskeið eru greiddir út eftir umfjöllun hjá nefnd sjóðsins. Forsenda greiðslu er að starfsmenn FOSS eða nefnd sjóðsins hafi samþykkt umsókn og fullnægjandi gögnum hafi verið skilað
4.2. Endurnýjun styrks
Útgreidd upphæð styrkja endurnýjast að 12 mánuðum liðnum miðað við greiðsludag hverrar umsóknar.
5. Réttur fellur niður
5.1. Sótt um aftur í tímann
Réttur til styrkja úr sjóðnum fellur niður sé ekki sótt um styrk innan 12 mánaða frá því að til útgjalda var stofnað. Móttaka umsóknar verður því að vera innan 12 mánaða frá útgáfudegi reiknings.
5.2. Styrks ekki vitjað
Sé ekki brugðist við vilyrði um styrk og viðbótargögn og/eða upplýsingar sendar innan þriggja mánaða frá því að fyrst var óskað eftir viðbótargögnum fellur umsókn niður.
6. Önnur ákvæði
6.1. Tvígreiðsla eða ofgreiðsla styrks
Ef mistök verða við afgreiðslu styrksumsóknar eða við greiðslu styrks munu starfsmenn sjóðsins leitast við að leiðrétta þau eins og fljótt og hægt er. Félagsfólk skal tilkynna sjóðnum ef um ofgreiðslu er að ræða og endurgreiða ofgreidda upphæð þegar í stað.
6.2. Endurskoðun verklags- og úthlutunarreglna
Verklags- og úthlutunarreglur þessar skulu sæta endurskoðun í maí ár hvert út frá fjárhagsstöðu sjóðsins. Reglurnar geta tekið breytingum samkvæmt ákvörðun stjórnar og eru þær kynntar á heimasíðu félagsins.
6.3. Upplýsingar til skattyfirvalda
Námskeiðsstyrkir eru skattskyldir, en heimilt er að færa kostnað til frádráttar skv. reglum skattyfirvalda. Í byrjun hvers árs eru sendar upplýsingar til skattyfirvalda þar sem gerð er grein fyrir styrkþegum og styrkupphæðum síðastliðins árs. Félagsfólk ber ábyrgð á því að varðveita frumrit reiknings vegna þess kostnaðar sem styrkur hefur fengist fyrir til að afhenda skattyfirvöldum sé þess óskað. Félagsfólki er bent á að kynna sér reglur RSK varðandi styrki og skattafrádrátt á heimsíðu skattsins.
6.4. Stjórn, bókhald og endurskoðun reikninga
Á aðalfundi FOSS skal nefnd sjóðsins gera grein fyrir störfum sínum s.l. starfsár.
Skrifstofa FOSS sér um bókhald, innheimtir tekjur hans og innir af hendi greiðslur úr sjóðnum.
Reikningsár sjóðsins er almanaksárið og reikningar skulu endurskoðaðir af kjörnum skoðunarmönnum FOSS.
Styrktarsjóður Klettur
Veikindi sjóðsfélaga
Sjúkradagspeningar
Tannlæknakostnaður
Styrkurinn nemur 50% af kostnaði sem fer umfram 50.000,- á 24 mánaða tímabili.
Sjónlagsaðgerð
Sjóðsfélagi sem hefur erið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 fær styrk til sjónlagsaðgerðar/augnsteinsaðgerðar á öðru auga 50.000 kr eða 100.000 kr fyrir bæði augu.
Sálfræði/félagsráðgjöf
Rétt á styrk eiga þeir félagar sem hafa verið starfandi í12 mánuði af síðust 24 mánuðum.
Glasafrjóvgun
Sjóðsfélagi sem hefur greitt iðgjöld að minnsta kosti 12 af síðustu 24 mánuðum fær styrk til glasafrjóvgunar/tæknifrjóvgunar allt að 150.000 kt. á hverjum 24 mánuðum.
Fæðingastyrkur
Sjóðsfélagi sem hefur verið starfandi síðustu 6 mánuði fyrir fæðingu barns og hefur gildan ráðningarsamning við upphaf fæðingarorlofs á rétt á styrk.
Hjartavernd
Sjóðsfélagi fær styrk til skoðunar vegna hjartaverndar allt að 200.000 kr. á ári
Sjúkranudd
Sjóðsfélagi
Gleraugnakaup
Sjóðfélagi fær styrk til gleraugnakaupa einu sinni á hverjum 36 mánuðum.
Dvöl á heilustofnum
Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 fær styrk til meðferðar hjá heilsustofnunum og heilsuhótelum.
Krabbameinsleit framhald
Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 6 mánuði af síðustu 12 fær styrk til krabbameinsleitar tvisvar sinnum á almanaksári.
Heyrnatæki
Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 getur sótt um styrk vegna kaupa á heyrnartækjum.
Veikindi maka eða barna
Heimilt er að greiða dagpeninga í allt að 60 daga vegna langvarandi veikinda maka eða barna sjóðfélaga enda missi hann launatekjur vegna þeirra.
Ættleiðingastyrkur
Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 fær styrk til ættleiðingar barns 200.000 kr. í eitt skipti.
Dánarbætur
Dánarbætur eiga einungis við þá sem voru í félögum sem eru aðilar að sjóðnum.
7 gr. undanþáguákvæði
Sjóðstjórn er heimilt að víkja frá framangreindum reglum og veita styrk vegna sérstakra aðstæðna.
Sjúkraþjálfun
Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 6 mánuði af síðustu 12 fær styrk til sjúkraþjálfunar.
Líkamsrækt
Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 mánuðum, fær styrk að hámarki 35.000 kr. á ári samkvæmt reikningi.