30.jún. 2026 -
Sumarlokun skrifstofu FOSS 2026
Skrifstofa FOSS verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með mánudeginum 13. júlí til og með föstudeginum 31. júlí 2026. Skrifstofan opnar aftur eftir verslunarmannahelgi þriðjudaginn 4. ágúst.
Bent er á að helstu þjónusta félagsins er aðgengileg á netinu. Umsóknir í fræðslusjóð eru sendar í gegnum umsóknarform á heimasíðu félagsins. Orlofsvefurinn er opinn allan sólarhringinn og þar er meðal annars hægt að bóka orlofshús og kaupa gjafabréf.
Einnig er hægt að senda erindi með tölvupósti á foss@foss.bsrb.is. Fylgst verður með áríðandi erindum sem þola ekki bið og brugðist við þeim eftir því sem við á.
Starfsfólk FOSS óskar félagsfólki gleðilegs sumars.