Rakel Þórðardóttir
Gengið er frá Hallgrímskirkju kl. 14:00. Þaðan verður gengið niður eftir Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu og Fríkirkjuvegi. Gangan endar við gatnamót Fríkirkjuvegar og Skothúsvegar en áfram verða atriði í Sóleyjargötu og inn í Hljómskálagarð þar sem útitónleikarnir verða.
Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga. Í henni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína og minna á baráttumál sín. Gangan er í senn kröfuganga hinsegin fólks, sem kallar eftir jafnrétti, vitundarvakningu og útrýmingu mismununar, sem og vettvangur til að fagna því sem hefur unnist í baráttunni.
Stéttarfélögin ganga saman
Að þessu sinni munu félagar í BSRB, KÍ, ASÍ og BHM ganga saman við dúndrandi undirleik Lúðrasveitar verkalýðsins. Félagar í FOSS eru hvattir til að taka þátt.
FOSS styður heilshugar við réttindabaráttu hinsegin fólks og hvetur til þátttöku í gleðigöngum laugardagsins.