Rakel Þórðardóttir
Ályktun um afnám áminningarskyldu var samþykkt á aðalfundi FOSS
Ályktun um afnám áminningarskyldu
52. aðalfundur FOSS mótmælir harðlega fyrirhuguðu afnámi áminningarskyldu hjá ríkisstarfsfólki.
Áminningarskylda er grundvallarþáttur í réttlátri málsmeðferð og tryggir að starfsmenn fái raunhæft tækifæri til úrbóta áður en gripið er til alvarlegra aðgerða.
Afnám áminningarskyldunnar veikir réttaröryggi, eykur hættu á geðþóttaákvörðunum og grefur undan trausti til stjórnsýslunnar. Slík breyting mun ekki bæta gæði mannauðsstjórnunar heldur þvert á móti auka óvissu, ósanngirni og óstöðugleika á vinnustöðum ríkisins.
Fundurinn krefst þess að fallið verði frá áformum um afnám áminningarskyldu og að áfram verði tryggð fagleg, gagnsæ og réttlát málsmeðferð í starfsmannamálum hins opinbera.