Rakel Þórðardóttir

15.nóv. 2024 - 5 mín

Stéttarfélögin hvetja stjórnvöld til þess að horfa til félagslegs stöðugleika, ekki síður en þess efnahagslega, til að stuðla að stöðugleika í íslensku samfélagi. Nauðsynlegt er að forgangsraða í þágu uppbyggingar í velferðarkerfinu og hafna einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. 

Mönnun opinberrar starfsemi ríkis og sveitarfélaga þarf að haldast í hendur við þær kröfur sem gerðar eru til þeirra opinberu þjónustu sem íbúar krefjast að veitt sé. Sveitarfélög þurfa að bjóða starfsfólki gott starfsumhverfi og fjárfesta í starfsþróun sem býr til betri starfsskilyrði og eykur starfsánægju. 

Til að bæta þjónustustig sveitarfélaga, krefst Landsfundur stéttarfélaga starfsmanna sveitarfélaga þess að löggjafinn tryggi að lagarammi í kringum fjármögnun sveitarfélag verði fullnægjandi.