Sameiginleg samninganefnd bæjarstarfsmannafélaga í BSRB hafa vísað kjaradeilu sinni til ríkissáttasemjara vegna viðræðna við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Viðræðurnar hafa staðið yfir í nokkra mánuði vegna endurnýjunar kjarasamninga sem taka til um 7000 félagsfólks í félögunum sem starfa um land allt. Samninganefndir telja fullreynt að ná samkomulagi milli aðila án milligöngu ríkissáttasemjara.
Samhliða hefur BSRB farið fyrir sameiginlegum málum félaganna líkt og útfærslu á vinnutíma, þ.e. vaktavinnu og dagvinnu sem sést nú fyrir endann á en enn er langt á milli aðila þegar kemur að jöfnun launa milli markaða.
Kjölur, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónusta
Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi
*FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu
Sameyki, stéttarfélag í almannaþjónustu
Starfsmannafélag Garðabæjar
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Starfsmannafélag Húsavíkur
Starfsmannafélag Kópavogs
Starfsmannafélag Mosfellsbæjar
Starfsmannafélag Suðurnesja
Starfsmannafélag Vestmannaeyja