28.apr. 2023 -

Á hádegi í dag, föstudaginn 28. apríl, hefst atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir vegna kjaradeilu FOSS - stéttafélags í almannaþjónustu og 10 annara aðildarfélaga BSRB við Samband íslenskra sveitarfélaga. Atkvæðagreiðslan fer fram rafrænt og mun berast félögum í tölvupósti en einnig er hægt að opna hana hér. Atkvæðagreiðslu lýkur á hádegi 4. maí og verða niðurstöður kynntar í kjölfarið.

 

Samband íslenskra sveitarfélaga neitar að verða við þeirri sjálfsögðu kröfu að leiðrétta augljósa mismunun á launum starfsfólks sveitarfélaga sem heyrir undir mismunandi kjarasamninga. Á mannamáli þýðir það að félagar FOSS eiga að fá að meðaltali 25% lægri launahækkun og verða þannig af um 140.000 krónum sem aðrir hafa þegar fengið í launaumslagið. Um er að ræða fólk sem vinnur hlið við hlið, jafnvel í sömu starfsheitum innan sömu stofnana sveitarfélaga; t.d innan leikskóla, grunnskóla, heimila fatlaðs fólks, íþróttamannvirkja og áhaldahúsa. Slík óbilgirni verður ekki liðin og því er kominn tími til frekari aðgerða.

 

Sameiginlegar kröfur BSRB félaga eru:

  • Jöfn laun og kjör tryggð fyrir jafnverðmæt, sömu og sambærileg störf hjá sveitarfélögunum frá 1. janúar 2023.
  • Launamismunur milli starfsfólks sveitarfélaga og starfsfólks Reykjavíkurborgar verði leiðréttur bæði hvað varðar grunnlaun og aukagreiðslur.
  • Mismunandi greiðslur til sjóða félagsins frá 2016 - 2023 verði einnig leiðréttar til jafns við aðra.

 

Greidd verða atkvæði um verkföll á ákveðnum vinnustöðum í Árborg, Ölfusi og Hveragerði sem ætlað er að þrýsta á Samband íslenskra sveitarfélaga að verða við réttlátum kröfum starfsfólks sveitarfélaga um allt land. Vinnustaðirnir sem um ræðir eru leikskólar, grunnskólar og skólaeldhús auk Þorlákshafnar.

 

Athugið að allt félagsfólk FOSS í Árborg, Ölfusi og Hveragerði  hefur atkvæðisrétt hvort sem verkföll eru fyrirhuguð á þeirra vinnustað eða ekki. Við hvetjum því öll til að kjósa til að tryggja starfsfólki félaga BSRB hjá sveitarfélögunum sanngjarnar launahækkanir. Þitt atkvæði skiptir máli.

 

Sömu laun fyrir sömu störf!