FOSS

white exit symbol
Fréttir
/

17. mar  2021

Dale Carnegie námskeið

 

Dale Carnegie fyrir félagsmenn FOSS

Hella- Hvolsvöllur og nágrenni

 

Foss og Dale Carnegie halda samstarfinu áfram og nú færum við okkur til þeirra félagsmanna sem eru í nágrenni Hellu og Hvolsvallar.  Námskeiðið verður haldið á  Goðalandi, Fljótshlíð og fer fram dagana 9.-11. apríl.

Markmið námskeiðsins eru:

  • Efla sjálfstraust til að láta til sín taka og styrkja sig í starfi
  • Bæta samskiptahæfni til að byggja traust, auka samvinnu og hafa jákvæð áhrif á starfsumhverfið
  • Auka tjáningarhæfni til að tjá sig af lipurð og háttvísi, líka undir álagi
  • Bæta viðhorf og hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður og álag
  • Efla leiðtogafærni til að geta veitt öðrum innblástur

 

Hvenær: Föstudaginn 9. apríl, laugardaginn 10. apríl og sunnudaginn 11. apríl frá kl. 8.30-16.30.  Námskeiðið verður haldið í Goðalandi, Fljótshlíð.

Verð:  Fullt verð er 159.000 en hlutur félagsmanna FOSS er 10.000 kr. ( Þeir sem skrá sig geta ekki fengið gjaldið endurgreitt nema hætt sé við með a.m.k tveggja vikna fyrirvara).

Skráning á námskeiðið fer fram á https://island.dale.is/einstok-namskeid/

og í síma 555 7080. Vinsamlegast setið FOSS í skýringu við skráningu.

Nánari upplýsingar veitir Unnur Magnúsdóttir, unnurm@dale.is, s. 698-4130