FOSS

white exit symbol
Fréttir
/

16. maí  2023

Kosning hafin um frekari verkföll.

Kosning um frekari verkföll í átta sveitafélögum á Suðurlandi. 


Á hádegi í dag, þriðjudaginn 16. maí hófst atkvæðagreiðsla um enn umfangsmeiri verkfallsaðgerðir vegna kjaradeilu FOSS og 10 annara aðildarfélaga BSRB við Samband íslenskra sveitarfélaga. Atkvæðagreiðslan fer fram rafrænt og mun berast félögum í tölvupósti.


Samband íslenskra sveitarfélaga neitar enn að verða við þeirri sjálfsögðu kröfu að leiðrétta augljósa mismunun á launum starfsfólks sveitarfélaga sem heyrir undir mismunandi kjarasamninga. Á mannamáli þýðir það að félagar FOSS eiga að fá að meðaltali 25% lægri launahækkun og verða af um 140.000 krónum sem aðrir hafa þegar fengið í launaumslagið. Um er að ræða fólk sem vinnur hlið við hlið, jafnvel í sömu starfsheitum innan sömu stofnana sveitarfélaga; t.d innan leikskóla, grunnskóla, heimila fatlaðs fólks, íþróttamannvirkja og áhaldahúsa. 

Greidd verða atkvæði um verkföll á ákveðnum vinnustöðum í átta sveitafélögum á Suðurlandi sem ætlað er að þrýsta á Samband íslenskra sveitarfélaga að verða við réttlátum kröfum starfsfólks sveitarfélaga um allt land. Vinnustaðirnir sem um ræðir eru sundlaugar, leikskólar, þjónustuver, þjónustumiðstöð, hafnir og íþróttamiðstöðvar.


Athugið að allt félagsfólk FOSS í þessum átta sveitafélögum hefur atkvæðisrétt hvort sem verkföll eru fyrirhuguð á þeirra vinnustað eða ekki. Við hvetjum því öll til að kjósa til að tryggja starfsfólki félaga BSRB hjá sveitarfélögunum sanngjarnar launahækkanir. Þitt atkvæði skiptir máli.

 

Næstu fréttir

Fyrir þá sem vilja fræðast