FOSS

white exit symbol
Fréttir
/

11. feb  2021

Ertu búin/n að sækja um í Kötlu félagsmannasjóð

Búið er að opna fyrir umsóknir í Kötlu félagsmannasjóð sjá nánar: katla.bsrb.is Katla er sjóður fyrir þá sem voru félagsmenn um lengri eða skemmri tíma á árinu 2020.

Til að fá greitt úr sjóðnum þurfa félagsmenn að sækja um á rafrænni umsóknarsíðu sjóðsins og leggja fram viðeigandi upplýsingar svo sem síðasta launaseðil viðmiðunarárs, starfshlutfall og starfstíma yfir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2020.

Sjóðurinn er jöfnunarsjóður sem til varð í síðustu kjarasamningum og greiðir til þeirra félagsmanna sem rétt eiga að hámarki kr. 80.000.

Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar, greitt verður úr sjóðnum í apríl.

Kynntu þér málið og sæktu um hér: http://minarsidurkatla.bsrb.is/