13. okt 2023
Viðburðurinn Sveitarfélag ársins 2023 þar sem niðurstöður könnunarinnar voru kynntar og fjögur sveitarfélög voru útnefnd Sveitarfélög ársins. Útnefningin er á grunni niðurstaðna viðhorfskönnunar félagsfólks 10 bæjarstarfsmannafélaga hjá sveitarfélögum á þeirra félagssvæðum og var könnunin gerð í samstarfi við Gallup. Þetta er annað árið í röð sem slík könnun er gerð og þeim sveitarfélögum veitt viðurkenning sem skara fram úr. Sveitarfélagið Grímsnes- og Grafningshreppur hnepptu fyrsta sætið annað árið í röð. Sveitarfélagið Bláskógabyggð var í öðru sæti og var þetta annað árið í röð sem þau hljóta nafnbótina. Sveitarfélagið Vogar var í þriðja sæti og Skagaströnd í því fjórða.
Tilgangurinn með könnuninni er að hvetja stjórnendur sveitarfélaga til að veita starfsumhverfi meiri athygli og ráðast í umbótaverkefni þar sem þess er þörf. Einnig er ætlunin að niðurstöðurnar skapi almenna umræðu um starfsumhverfi og stjórnun á vinnustöðum, félagsfólki stéttarfélaganna til hagsbóta. Ekki síst er tilgangurinn að veita góðum vinnustöðum viðurkenningu fyrir að hlúa vel að starfsfólki.
Mikill meðbyr var með könnuninni í ár og fjölgaði þátttakendum milli ára. Reiknuð var heildareinkunn út frá níu þáttum sem spurt var um í könnuninni en það voru stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd vinnustaðar, ánægja og
stolt og jafnrétti. Borið saman við niðurstöður könnunarinnar í fyrra fengu launakjörin lakari einkunn í ár en aukin ánægja var með sveigjanleika vinnu og jafnrétti. Mest er óánægja með launakjör á leikskólunum, sér í lagi hjá leikskólaliðum. Niðurstöðurnar leiða t.d. líka í ljós óánægju með hljóðvist hjá starfsfólki leikskóla og íþróttamannvirkja, matar- og kaffiaðstöðu telur starfsfólk í öryggis- og eftirlitsstofnunum ábótavant og sömuleiðis sýnir könnunin að veikleiki er í samskiptum og stjórnun í öldrunarþjónustu. Alls uppfyllti 21 sveitarfélag skilyrði fyrir niðurstöðum til að komast á lista sveitarfélaga með heildareinkunn. Það er fjölgun um sex sveitarfélög frá fyrra ári. Líkt og í fyrra fékk Grímsnes- ogGrafningshreppur flest stig í heildarniðurstöðunum, eða 4.403. Þar á eftir kom Bláskógabyggð með 4.349 stig, þá Sveitarfélagið Vogar með 4.236 stig og í fjórða sæti Sveitarfélagið Skagaströnd með 4.217 stig. Grímsnes- og Grafningshreppur fékk hæstu einkunnir allra fyrir launakjör, vinnuskilyrði, jafnrétti og deildi efsta sætinu hvað varðar þáttinn sjálfstæði í starfi með Bláskógabyggð. Bláskógabyggð var auk þess með hæstu einkunn allra sveitarfélaganna fyrir stjórnun, starfsanda og ímynd. Sveitarfélagið Vogar fékk hæstu einkunn allra sveitarfélaganna í þáttunum sveigjanleiki vinnu og ánægja og stolt.
Niðurstöður könnunarinnar hafa verið teknar saman og gefnar út í skýrslu sem er aðgengileg á heimasíðu verkefnisins.
Viðburðinum var streymt beint á facebook síðu verkefnisins og er upptakan aðgengileg þar.
4. des 2023
27. nóv 2023
23. okt 2023
13. okt 2023
4. des 2023
27. nóv 2023
23. okt 2023
13. okt 2023