FOSS

white exit symbol
Fréttir
/

12. apr  2022

Ný launatafla hefur tekið gildi frá 1. apríl vegna hagvaxtarauka.

Í gildandi samningum FOSS og Sambands íslenskra sveitarfélaga eru tengiákvæði við  lífskjarasamning á almennum vinnumarkaði um greiðslu hagvaxtarauka.
Í viðauka 3 í kjarasamningunum kemur fram að á árunum 2020 - 2023 komi til framkvæmdar launaauki á grundvelli þróunar vergrar landsframleiðslu á hvern íbúa.

Forsendunefnd ASÍ og SA hafa staðfest að hagvaxtarauki að upphæð 10.500 krónur komi á taxtalaun frá 1. apríl og til greiðslu þann 1. maí næstkomandi.


Á fundi samráðsnefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB þann 7. apríl 2022 er niðurstaða samráðsnefndar að frá 1. apríl bætist hagvaxtaraukinn 10.500 krónur við launatöflur gildandi kjarasamningsaðila. 


Með tilkomu hagvaxtarauka sem gildir frá 1. apríl 2022 styttist gildistími launatöflu 4 og

launatafla 5 með hagvaxtarauka gildir frá 1. apríl 2022 til 31. mars 2023.

Sjá launatöflu hér