Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

24.1.2012

Mannauðssjóður Samflots

Við viljum minna á Mannauðssjóð Samflots. Þar er hægt að sækja um styrki vegna náms- og kynnisferða stofnanna. Þeir sem geta sótt um styrk til sjóðsins eru sveitarfélög, stofnanir og aðrir vinnuveitendur sem greiða í sjóðinn og aðildarfélög Samflots.

Nánari upplýsingar um sjóðinn er að finna á http://mannaudssjodur.samflot.is

23.1.2012

Tilraunaverkefni SA og ASÍ kostað af Atvinnuleysistryggingasjóði

BSRB hefur áður lýst andstöðu sinni á tilfærslu á þjónustu við atvinnuleitendur frá Vinnumálastofnun til stéttarfélaga. Nú liggur hins vegar ljóst fyrir að velferðarráðuneytið hefur samþykkt að tiltekin stéttarfélög innan Alþýðusambandsins munu taka þátt í svokölluðu tilraunaverkefni þar sem stéttarfélögin í samstarfi við atvinnurekendur koma í ríkara mæli að þjónustu við atvinnuleitendur. Til verkefnisins á að leggja árlega 113 milljónir næstu þrjú árin og munu þeir fjármunir koma úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Sjá nánar

18.1.2012

FRÆÐSLUSJÓÐUR

Samkvæmt nýjum reglum Fræðslusjóðs að halda skuli fundi einu sinni í mánuði var haldinn fundur 12. janúar.Þrjár  umsóknir bárust og aðeins einn umsækjandi átti rétt á úthlutun en hinar tvær  bíða desemberfundar þar sem þær tengjast ekki starfi umsækjanda.Við viljum ítreka við félagsmenn að kynna sér reglur sjóðsins vel áður en sótt er um styrk svo ekki komi til þess að fresta þurfi afgreiðslu.

Stjórn Fræðslusjóðs

16.1.2012

BSRB, KÍ og BHM vara við tilfærslu á málefnum atvinnuleitenda

Stjórnvöld undirbúa nú tilraunaverkefni sem felur í sér að stéttarfélög taka að sér hluta af þjónustu atvinnuleitenda. BSRB, KÍ og BHM vara eindregið við því að þessi leið verði farin og óttast að fyrirkomulagið verði til að skerða bolmagn Vinnumálastofnunar til að sinna starfi sínu.

„Við teljum að þarna verði mismunun á milli stéttarfélaga um þjónustu við atvinnuleitendur.Við viljum að þjónusta við atvinnuleitendur sé hluti af velferðarkerfinu og það sé haldið utan um það á einum og sama stað, einu og sama borði," segir Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB.

Elín segir jafnframt að með þessu sé verið að dreifa þekkingu, kunnáttu og fjármunum.Slíkt hafi óhjákvæmilega áhrif á starfsemi Vinnumálastofnunar.

„Það er þá verið er að skerða þá þjónustu sem þar er fyrir, og við teljum þvert á móti að það skipti máli eins og staðan er í dag að  efla frekar starf Vinnumálastofnunar en hitt," segir Elín enda atvinnuleysi í hámarki.

BSRB, KÍ og BHM leggjast því alfarið gegn því að atvinnuleitendur verði flokkaðir á grundvelli félagsaðildar í stéttarfélög þegar kemur að þjónustu til atvinnulausra. Það er jafnframt skoðun samtakanna að málefni atvinnuleitenda séu opinbert velferðarverkefni þar sem gæta þurfi jafnræðis og því sé farsælast að opinber aðili hafi yfirumsjón með því.

9.1.2012

Eingreiðsla 1. febrúar 2012

 

peningamyndBSRB vekur athygli starfsmanna sveitarfélaga og stofnanna þeirra á því að samkvæmt kjarasamningum ber þeim að fá sérstaka eingreiðslu þann 1. febrúar 2012.

Þessi sérstaka eingreiðslu greiðist samanber ákvæði viðkomandi kjarasamninga sem hljóðar svo: „Starfsmenn sem eru við störf þann 1. febrúar 2012 fá greidda sérstaka eingreiðslu, kr. 25.000, - miðað við fullt starf. Starfsmenn í hlutastarfi fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall 1. febrúar 2012."

Þess utan fá svo bæði starfsmenn ríkis og sveitarfélaga 3,5% hækkun á launum þann 1. mars næstkomandi samkvæmt kjarasamningum sem gerðir voru síðasta vor

22.12.2011

Gleðileg jól

Gleðileg jól
gott og farsælt komandi ár
Megi ljós og friður lifa með okkur öllum

Stjórn og starfsmenn  

           

19.12.2011

Fundur var haldinn í Fræðslusjóð FOSS

blómam 

Fundur var  haldinn í Fræðslusjóði 15 desember.

Til afgreiðslu voru sautján umsóknir og fengu þær allar afgreiðslu.

Við viljum benda félagsmönnum á að breytingar hafa verið gerðar á sjóðnum t.d. á gr. 5. og 8.

Fyrir breytingu voru styrkir fyrir bæjarstarfsmenn kr. 75þús.  og 48þús. fyrir ríkisstarfsmenn á þriggja ára fresti. Sú breyting hefur verið gerð að nú sitja bæjar-og ríkisstarfsmenn við  sama borð hvað upphæð senerti r og  jafnframt hefur styrkurinn verið hækkaður í 80. þús á tveggja ára fresti.

Athygli skal vakin á því að þeir sem hafa ekki sent reikninga með desember umsókn sinni verða að ganga frá því fyrir 20.des. annars verður styrkurinn ekki afgreiddur fyrir jól.

Að lokum sendum við ykkur bestu óskir um Gleðileg jól og farsælt komandi ár og þökkum samstarfið á liðnu ári.

Stjórn og starfsmaður Fræðslusjóðs

7.12.2011

Lokað fimmtudaginn 08.12.2011

Skrifstofan verður lokuð fimmtudaginn 8 desember vegna fundahalda.

Starfsmaður   

5.12.2011

Fundur var haldinn í Fræðslusjóði mánudaginn 21. nóvember 2011

 

Nítján  umsóknir lágu fyrir fundinum þar af tvær frá síðasta fundi sem þá var hafnað vegna ónógra upplýsinga. Önnur þeirra var afgreidd á þessum fundi   en hinni hafnað þar sem umsækjandi hafði ekki rétt á afgreiðslu.

Tíu umsóknir voru afgreiddar á þessum fundi  en sjö bíða afgreiðslu desemberfundar þar sem þær tengast ekki starfi umsækjanda.

Farið var yfir reglur sjóðsins og gerðar nokkrar breytingar sem lagðar verða fyrir vinnufund stjórnar sem verður 8.des.

Næsti fundur  ákveðinn 15. des. n.k.

Stjórn Fræðslusjóðs 

28.11.2011

DESEMBERUPPBÓT

jólDESEMBERUPPBÓT FYRIR ÁRIÐ 2011 VERÐUR SEM HÉR SEGIR.
Fyrir sveitarfélögin kr. 75.500.-


Greiða skal þeim starfsmönnum sem ráðnir voru fyrir 29 maí 2005 og voru þá að störfum
kr. 82.300.-ATH. GILDIR EINGÖNGU FYRIR ÞÁ SEM VORU FÉLAGAR Í FOSS FYRIR 29 MÁI 2005 OG ERU ENN STARFANDI.


DESEMBERUPPBÓT FYRIR RÍKISSTARFSMENN ER

kr. 48.800  sérstakt álag á árinu 2011 er kr. 15.000.-

 

 

 

 




Spurning

Er skert þjónusta á þínum vinnustað




Hugmyndabanki

Hér geta félagar skráð hugmyndir og tillögur til félagsins.

Skrá hér

Lífeyrissjóður


LSR

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

 

LSS

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga


Merki

 BSRB

BSRB

 Styrktarsjóður BSRB
Styrktarsjóður

Starfsmat   Samflot Vefnám trúnaðarmanna   Framvegis Starfsmennt logo 

Slóðin þín:

Um FOSS » Fréttir

Toppmynd


Upplýsingar

Opnunartími

Skrifstofan er opin mánudaga - fimmtudaga frá kl. 09:00-16:00. 

  Lokað á föstudögum.

sjá nánar


Stjórnborð

Stórt letur Lítið letur