Beint á leiđarkerfi vefsins

Orlofsmál

Hlutverk orlofsnefndar er að hafa sem fjölbreyttast í boði í orlofsmálum hvort sem það er um vetur eða sumar.

AÐ GEFNU TILEFNI VILJUM VIÐ VEKJA ATHYGLI Á ÞVÍ AÐ VIÐ ENDURGREIÐUM EKKI SUMARHÚSIN EF FÓLK HÆTTIR VIÐ.

 Orlofsvefurinn  (eingöngu fyrir félagsmenn að bóka og kaupa)

Orlofsnefnd.


Sigurður Óskarsson Þorlákshöfn
Ragnheiður Elsa Busk  Hveragerði
Sesselja Jónasdóttir Selfossi

orlof 



Reglur Orlofsnefndar.

  1. Starfsaldur og fyrri úthlutanir ráða úrslitum um úthlutun
  2. Aðeins er úthlutað einni viku 7 hótelmiðum til umsækjanda hverju sinni.
  3. Félagsmönnum er algjörlega óheimilt að úthluta orlofshúsnæði til annara.
  4. Hafi greiðsla ekki borist á gjalddaga mun orlofsheimilanefnd úthluta öðrum umsækjanda orlofshúsið
  5. Húsin eru útbúin fyrir sex manns í gistingu og ekki er gert ráð fyrir fleirum í gistingu.
  6. Vetraleiga hefur ekki áhrif á sumarleigu.

  Verklagsreglur fyrir orlofssjóð FOSS 

Orlofsnefndin starfar samkvæmt Stefnu og verksviði FOSS og er kosin á aðalfundi samkvæmt lögum félagsins.       

  Lög FOSS, 11. grein “Kosin þriggja manna orlofsnefnd til tveggja ára. Stjórn félagsins er ekki kjörgeng í nefndina     
Stefna og verksvið; FOSS leggur metnað sinn í fjölbreytileika í orlofsmálum eftir því sem kostur er.  

Orlofsnefnd FOSS;      

 kýs sér formann og ritara      

 vinnur samkvæmt stefnu og verksviði félagsins   

 starfsmaður FOSS vinnur með nefndinni     

 hefur til ráðstöfunar innkomu í orlofssjóð ár hvert að frádregnum kostnaði vegna orlofsmála 

 getur að hámarki haft til ráðstöfunar  50% af ráðstöfunarfé orlofsnefndar    

 fari kostnaður fram úr heimild skal sameiginlegur fundur stjórnar og orlofsnefndar taka ákvörðun um málsmeðferð      

ber ábyrgð á orlofsmálum félagsins      

fundir skulu haldnir eins oft og þurfa þykir en þó er heimilt að úthluta utan funda ef þess er kostur 

 allar úthlutanir eru skráðar og aðgengilegar nefndinni   

 hefur umsjón með eignum orlofssjóðs       

 lagfærir eða lætur laga eftir þörfum     

  fundargerðir orlofsnefndar fara fyrir stjórn félagsins 

gefur skýrslu á aðalfundi      

meiriháttar viðhald eða fjárfesting fari fyrir stjórn FOSS 

Samþykkt á stjórnarfundi FOSS 10. desember 2007 


Hugmyndabanki

Hér geta félagar skráð hugmyndir og tillögur til félagsins.

Skrá hér

Lífeyrissjóður


LSR

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

 

LSS

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga


Merki

 BSRB

BSRB

 Styrktarsjóður BSRB
Styrktarsjóður

Starfsmat   Samflot Vefnám trúnaðarmanna   Framvegis Starfsmennt logo 

Slóđin ţín:

Orlofsmál

Toppmynd


Upplýsingar

Opnunartími

Skrifstofan er opin mánudaga - fimmtudaga frá kl. 09:00-16:00. 

  Lokað á föstudögum.

sjá nánar


Stjórnborđ

Stórt letur Lítiđ letur